Kominn aftur

Jæja þá er mar loksins búin að fá tölluna sína aftur. Það var nú búið að bíða lengi eftir henni en jæja það veit sennilega engin af því að ég er farin að blogga aftur svo það er sennilega betra að auglýsa það...enda vilja nú allir vita hvað er í gangi hjá manni. Annars er alltaf hægt að lesa barnaland. Jæja nenni ekki meira í bili enda ekkert að gerast enn í dag enda klukkan ekki neitt neitt...mar bara vakin í morgun með látum af krökkunum sem hoppuðu ofan á manni minnti mann soltið á þegar amma emma fór að hoppa eins og skopparakringla í gær sem var virkilega fyndið og kom manni í smá jólaskap annars er mar ekki mikið í jólaskapi og verið að spá í að setja kanski upp jólatréð til að koma sér í það en sjáum til það verður sennilega ekki gert hefðir og svoleiðis.

Sunna farin

Nú er hún Sunna okkar farin í ferðalag með ömmu sinni...hún fer að vísu ekki fyrr en á morgun en hún gistir hjá ömmu sinni í nótt.Það þýðir að við sjáum hana elsku Sunnu okkar ekki fyrr en eftir 3 vikur og munum við sárt sakna hennar... vonandi hefur hún gaman af að fara í ferðalag um landið.


Lífið er yndislegt

Lífið er alveg frábært ... allt að gerast í okkar lífi börnin yndisleg (þegar þær sofaHlæjandi ) rúmur mánuður í giftinguna og skýrnina og já nei þið fáið ekki að vita hvað hún á að heita...það er litla leyndarmálið okkar ... annars ekki mikið að gerast mar reynir að hanga sem mest heima og kvíla sig en það þarf náttúrulega samt að fara út í búð af og til sérstaklega þegar eru í gangi fullt af tilboðum og fílar Biggi sig í tætlur í þessu stanslausa búðarápi getur ekki fengið nóg...lol...fórum bæði í gær og í dag og keyptum fullt af fötum á krakkana ekki veitti af...en jæja annars hafði gömul skólasystir mín frá þýskalandi samband við mig alveg óvænt var eiginlega búin að afskrifa hana.

Komin í heimin

Hæ hæ

Þetta er kanski soltið seint skrifað en litla stelpan er komin í heimin og kom hún með látum...var með hríðir allan dagin 26.06.06 en alltaf duttu hríðirnar niður þangað til klukkan var 9:00 að kvöldi til og kom systir mín í einum grænum til að vera hjá krökkunum af því að þá var orðið 5 mínútur á milli...flýttum okkur upp á sjúkrahús og duttu þá hríðirnar hálfpartin niður aftur en svo um hálf tvö um nóttina 27.06.06 fór allt í einu vatnið og kom litla stelpan með vatninu út í tveimur hríðum og tók það ekki nema bara tvær mínútur ef að það náði því.En það var nú ekki allt eftir það var beðið eftir fylgjunni og fann ég svoltið til í kviðnum meira en átti að vera og vildi fylgjan ekki koma..svo rifnaði hún og ég var við það að blæða út og var alveg að líða út af þegar læknirinn hvolfdi rúminu svo að blóðið renndi í hausin á mér aftur... Biggi grey var rosalega hræddur þá um mig og fór fram gat ekki horft á þennan hrylling lengur ,...mér fossblæddi og var kallað á svæfingarlæknir og farið með mig í flýti inn á skurðstofu þar sem ég var svæfð fylgjan tekin og ég saumuð...sem betur fer fór nú allt vel á endanum og líður öllum vel núna en Biggi sagði mér það að hann var farin að gráta af því að hann var svo hræddur og var hann nánast óhuggandi ...hjúkkan sagði samt að ég var aldrei í lífshættu en það nennti náttúrulega engin að segja Bigga það þegar allt leit út fyrir að mér væri að blæða út...þvílíkt og annað eins...Jæja "litla" stelpan var 17 merkur og 54 cm. Algjör dúllla.


Komið að því?

Jæja þá er sennilega komið að því vona ég. Er búin að vera með hríðir síðan kl: 7:00 í morgun og fórum upp á sjúkrahús þegar við vorum búin að fara með krakkana í leikskólan. En þar datt allt niður ... fékk eina hríð allan tíma sem ég var þarna sem var örruglega 40 mínútur eða svo, var okkur bara sagt að fara heim aftur og koma aftur þegar minna væri á milli. Ég fékk snilldarhugmynd um að fara að labba inn í kjarnaskóginum og reyna að koma þessu aftur af stað af því að ljósan sagði að ég væri komin með 4 í útvíkkun og ætti ekki að fara mjög langt af því þetta gæti gerst bara alveg núna fljótlega. þegar við vorum búin að vera inn í kjarna í örruglega klukkutíma og ekkert gerðist áhváðum við að fara bara heim og hvíla okkur í sófanum. Ég notaði tækifærið og fór í sturtu og horfðum við svo á mynd og svo á fréttir og áhváðum svo að fara í tölvunna. Er búin að hryngja í Söruh systir og biðja hana um að ná í krakkana kl: 16:00 af því miðað við hvað er furðu rólegt held ég alveg örruglega að ég verð ekki búin að eiga þá en sjáum til ... nei litlar líkur á því klukkan orðin að verða eitt og enn ekki minna en allavega 10 mínútur á milli ... Þetta barn er virkilega ekki að flýta sér.

Er skrifuð inn í dag

Jæja mar er skrifaður inn í dag en það þýðir víst ekki að það komi barn í dag .... maður orðin virkilega þreyttur og vill bara drífa þetta af.... vona að þetta barn er eitt af þessum 4, eitthvað prósentum sem að kemur á deginum sem mar er skrifaður inn. Væri nú líka flott að eiga barnið á jónsmessu.

Jæja já

Jón víst í heimsókn en einu sinni. Við fullorðna fólkið enn að bíða eftir barninu sem má koma núna hvenær sem er. En er sennilega ekkert á leiðinni. Jón alltaf að hanga hér mar orðin hálf leiður á því ... tihihi nei nei mar má nú gera grín að minni máttum he he jón litli grey. Fengum okkur öll pitsu áðan en engin virkilega svangur svo að það varð mikið eftir eða heila tvær sneiðar he he. Hef virkilega ekkert gáfulegt að segja svo að það er víst best að þegja eins og jón flón segir he he.

Fyrsta færslan mín

Jæja þá er mar byrjaður að blogga aftur sjáum til hvað það gangi lengi Tala af sér engilega kíkja reglulega á síðuna mína og sjá hvað er í gangi hjá okkur. Næst á dagsskrá er víst að fara að eiga barn sem á að vera stelpa af sónarnum að dæma en eftir hjartslættinum að dæma á það að vera strákur svo að það verður bara að koma í ljós Hlæjandi. Vill einhver giska kanski??? Glottandi Ég held að þetta barn sé samt hægt við að koma ... er skrifuð inn 24.06.06 svo að það má koma hvenær sem er en það á svo klikkuð systkin að það er kanski bara hrædd við að fæðast inn í þessa klikkuðu fjölskyldu ... he he.


 

Lára Elísabet og Birgir
Lára Elísabet og Birgir
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Hverjir verða heimsmeistarar á HM

Hverjir verða heimsmeistarar á HM

Tenglar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 272

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband